Við bjóðum ykkur í sveitadvöl á Hala í Suðursveit.
Á Hala sveitahóteli eru stór og vel búin herbergi með baði í nýbyggðum húsum.
Menning og saga í bland við fjölbreytta afþreyingu er allt um kring.
Þórbergsetur er menningarsetur í sveit. Þar er sýning um Þórberg Þórðarson rithöfund( 1888 – 1974) sem fæddist og ólst upp á Hala.
Þar rís list Þórbergs hæst hvernig honum tekst að glæða fróðleik lífi. Sjón er sögu ríkari.
Á matseðlinum í veitingahúsi Þórbergsseturs er þjóðlegur íslenskur matur. Má þar nefna íslenska kjötsúpu, Halalamb og bleikjurétti. Silungur var oft á borðum á Hala er gesti bar að garði.